Skattframtal einstaklinga
Greiðir þú hærri skatta en þér ber skylda til? Færðu allan þann skattafrádrátt og allar þær bætur sem þú átt rétt á? Við viljum ekki greiða meira til samfélagsins en okkur ber og fá þær bætur sem við eigum rétt á. Við viljum hugsa um okkar hagsmuni gagnvart skattayfirvöldum og ekki sé á okkur hallað.
Forskráning og villuprófun hefur verið mjög góð undanfarin tvö ár, svo líkur á villum og þ.a.l. tap á fjármunum fyrir okkur, hafa minnkað mikið. Forskráning byggist á innsendum upplýsingum og eru áreiðanleg, fyrir utan einstaka sem senda frá sér rangar upplýsingar sem eru þá helst vinnuveitendur. En tilfellin eru ekki mörg.
Forskráning og villuprófun ná ekki til þeirra sem eru að fá verktakagreiðslur og eru í rekstri á eigin kennitölu. Við höfum uppfært síðuna ráðgjöf/Spurt og svarað, sem er sérstaklega sniðin fyrir þá sem eru að hefja rekstur og eru að fá verktakagreiðslu(r). Þar eru spurningum svarað sem við höfum fengið í gegnum tíðina.
01.03.23 – Netframtal einstaklinga 2023 verður opnað á þjónustuvefnum, hjá RSK
14.03.23 – Lokaskiladagur almenns frests fyrir einstaklingsframtöl
20.04.23 – Lokaskiladagur atvinnumanna á einstaklingsframtölum utan rekstrar
20.04.23 – Lokaskiladagur atvinnumanna á einstaklingsframtölum með rekstur
31.05.23 – Álagning einstaklinga